Endurmenntun LbhÍ í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur stendur fyrir námskeiðinu Húsgagnagerð II á vordögum 2021. Námskeið þetta er framhald námskeiðsins Húsgagnagerð úr skógarefni I sem hefur verið kennt í frá árinu 2009 og notið mikilla vinsælda.
Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem sótt hafa námskeiðið Húsgagnagerð I hjá LbhÍ og hafa kynnt sér viðkomandi tálgutækni, „þurrt í blautt“ samsetningar á kolli, bekk og tréhamri og notað yddara, borvélar, afberkingaráhöld, axir, klippur og sagir við húsgagnagerðina og í skógarvinnu.
Á námskeiðinu:
- hanna þátttakendur og vinna frummyndir úr greinaefni
- verður rifjað upp verklag og notkun áhalda frá fyrra námskeiði og byggt ofan á þá reynslu
- læra þátttakendur að sækja sér efni í skóg til að útbúa greinahaldara, dýr og húsgögn
- verður fjallað um umhirðu og viðargæði trjágróðurs
- verður fjallað um eiginleika og galla einstakra íslenskra viðartegunda
- verður fjallað um yfirborðsmeðhöndlun, viðarvörn inni- og útihúsgagna
- verður fræðsluefni skoðað sérstaklega hjá netmiðlum og víðar
Öll verkfæri og efni eru til staðar. Þátttakendur þurfa að vera í vinnufatnaði á námskeiðinu og taka með fatnað til útiveru. Allir fara heim með afrakstur námskeiðsins.
- Kennsla: Ólafur Oddsson fræðslufulltrúi Skógræktarinnar og verkefnisstjóri Lesið í skóginn og Ólafur G. E. Sæmundsen skógtæknir.
- Tími: Fös. 17. apríl, kl. 16-19 og lau. 18. apríl, kl. 9-16 (14 kennslustundir) hjá Skógræktarfélagi Árnesinga á Snæfoksstöðum í Grímsnesi.
- Námskeiðið frestast um óákveðinn tíma vegna stöðu mála á landinu í tengslum við COVID-19
- Verð: 35.500 kr. (kaffi, hádegismatur og efni innifalið í verði)
- Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.
Skráning til 7. apríl.