Símenntun LbhÍ stendur í samstarfi við Brunavarnir Árnessýslu, Skógræktina og Verkís fyrir námskeiði 3. apríl að Reykjum í Ölfusi um forvarnir gegn gróðureldum. Þar verður m.a. kynntur upplýsingavefurinn grodureldar.is.

Námskeiðið er öllum opið en hentar sérstaklega bændum, skógareigendum og öðrum sem eiga land þar sem eldur getur brunnið og ógnað verðmætum.

Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða lög og reglugerðir gilda um brunavarnir á skógarsvæðum og í sumarbústaðalöndum. Kynntur verður vefurinn grodureldar.is en einnig farið yfir skipulag skóga og ræktaðra svæða með tilliti til brunavarna. Þá verður fjallað um varnarsvæði – hvers konar gróður er á slíkum svæðum, og um mikilvægi vega og slóða á ræktuðum svæðum og gott aðgengi að vatni.

Er trjágróður miseldfimur? Hvað töpum við miklu kolefni ef hann brennur? Er hægt að tryggja tré/skóg? Sagt verður frá þeim búnaði og aðferðum sem nýtast við að ráða niðurlögum gróðurelda. Næsta slökkvilið, hvaða búnað hefur það til umráða? Eru öll slökkvilið eins útbúin? Hver eru fyrstu viðbrögð við gróðureldum? Hvað þarf að vera til staðar í sumarhúsinu/á svæðinu? Skiptir máli hvernig gróður er næst mannvirkjum?

Kennsla: Dóra Hjálmarsdóttir Verkís, Björn B Jónsson / Björn Traustason Skógræktinni, Pétur Pétursson og Haukur Grönli Brunavörnum Árnessýslu og Björgvin Örn Eggertsson LbhÍ

Tími: Fös. 3. apríl kl. 13.30-17 (5 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi

Verð: 9.200 kr. (Kaffi og gögn innifalin í verði)

Skráning til 28. mars.

Skráning