Árlegi jólamarkaðurinn Jólakötturinn verður haldinn að venju laugardaginn 10. desember kl. 11-16 að Valgerðarstöðum í Fellum.
Þetta verður í fimmtánda sinn sem markaðurinn er haldinn. Hann verður í rúmgóðum vinnslusölum Jurtar ehf (wasabi-ræktarinnar) þar sem Barri var áður til húsa. Nóg er þar af bílastæðum og seljendur alls kyns varnings verða alls um 60 talsins.
Seld verða jólatré bæði frá Skógræktinni og skógarbændum, rauðgreni, blágreni, stafafura, fjallaþinur og fleiri skógarafurðir svo sem eldiviður og sitthvað annað.
Matvara er stór þáttur á markaðinum að venju, skata, síld og rúgbrauð, svínakjöt, makríll, smákökur, flatbrauð og annað bakkelsi, einnig ýmiss konar handverk, t.d. vörur úr íslenskum viði, handgerð kerti, glervara, prjónavörur og fleira.
Að markaðnum standa Félag skógarbænda á Austurlandi og Skógræktin á Hallormsstað.
Velkomin á Jólaköttinn 2022!
Upplýsingar um fleiri viðburði tengdar jólum, jólatrjám og skógum á aðventunni má finna hér.