Kerstin Frank. Ljósmynd af bb.is
Kerstin Frank. Ljósmynd af bb.is
 

Kerstin Frank ver í dag meistaraprófsritgerð sína í haf- og strandsvæðastjórnun við Háskólasetur Vestfjarða þar sem rannsakað er vistkerfi tveggja skógarreita á Vestfjörðum og könnuð viðhorf almennings til skógræktar á svæðinu. Lítil binding mældist í skógunum tveimur og enginn marktækur munur á uppleystu kolefni eða köfnunarefni í lækjum sem runnu gegnum eða utan reitanna enda skógurinn ungur.

Ritgerðin ber titilinn „From Coast to Forest – Development of Icelandic Coastal Forests, their Linkage to Aquatic Systems and the Perspective of Locals on them“. Nánari upplýsingar er að finnaí útdrætti á ensku.

Fyrsti leiðbeinandi Kerstin í verkefninu er Daniel Govoni, doktorsnemi við Háskólann á Hólum og kennari við Háskólasetur Vestfjarða þar sem hann er einnig fagstjóri annarnáms sem kallast Climate Change in the Arctic og er á vegum School for International Training á Íslandi. Annar leiðbeinandi er dr Brynhildur Bjarnadóttir, dósent við Háskólann á Akureyri. Prófdómari er dr. Jill Welter, fagstjóri meistaranámsins Climate Change and Global Sustainability hjá School for International Training.

Útdráttur

Á Íslandi, í nánast skóglausu landi, er talsverð áhersla lögð á að endurheimta töpuð skógarvistkerfi en skortur á rannsóknum um samspil manna og skóga er umtalsverður. Í þessu meistaraprófsverkefni voru tveir skógarreitir á Vestfjörðum lagðir til grundvallar rannsóknum á skógarvistkerfinu sjálfu, sem og rannsóknum á viðhorfi almennings til skógræktar á svæðinu. Fram fóru hefðbundnar skógmælingar á tveimur 15 ára skógarreitum í Tálknafirði til að leggja mat á kolefnsibindingu þeirra. Enn fremur voru áhrif skógar á ferskvatnskerfi skoðuð með því að mæla styrk uppleysts kolefnis (DOC) og köfnunarefnis (TDN) í lækjum sem runnu til sjávar, annars vegar í gegnum skógarvistkerfi og hins vegar í gegnum skóglaust land.

Niðurstöðurnar sýndu umtalsverðan vöxt í trjánum frá því að síðasta úttekt var gerð, árð 2009. Hraði kolefnisbindingar í reitunum var hins vegar fremur lítill eða um 0,55 t og 0,74 t CO2 á hektara á ári. Enginn marktækur munur mældist á styrk uppleysts kolefnis og köfnunarefnis í lækjum sem runnu annars vegar í gegnum skógarvistkerfi og hins vegar í gegnum skóglaust svæði.

Meistaraprófsvörnin er opin almenningin en vegna samkomubanns af völdum COVID-19 verður vörnin aðgengileg á netinu á YouTube-rás Háskólaseturs. Vörnin hefst kl. 17.

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson