Fluga á reyniviðarblómi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Fluga á reyniviðarblómi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Norræni vinnuhópurinn um líffræðilega fjölbreytni og menningarminjar, NBN, auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2021. Að þessu sinni verður m.a. lögð áhersla á styrki sem snerta líffjölbreytni, minjar og loftslagsmál. Umsóknarfrestur er til 6. júní.

Á hverju ári styrkir NBN norræn samstarfsverkefni sem stuðla að því að stöðva missi á líffræðilegum fjölbreytileika og menningaminjum.

Verkefni sem hljóta styrk eiga að stuðla að því að ná markmiði kafla 5.3, Umhverfi og líffræðileg fjölbreytni, í samstarfsáætlun Norðurlandanna um umhverfis- og loftslagsmál.

Á árinu 2021 veitir NBM meðal annars styrki til verkefna um líffræðilega fjölbreytni, menningarminjar og loftslagsstarf. Verkefnin eiga að stuðla að því að tryggja að tekið sé tillit til líffræðilegrar fjölbreytni, menningaminja og vistkerfaþjónustu í loftslagsstarfinu.

Umsóknarfrestur er til 6. júní 2020.

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson