Landgræðsluskógar hafa úthlutað trjáplöntum til margvíslegra verkefna víða um landið. Með nýjum samn…
Landgræðsluskógar hafa úthlutað trjáplöntum til margvíslegra verkefna víða um landið. Með nýjum samningi er starfsemin tryggð næstu fimm árin. Ljósmynd af Hólasandi: Pétur Halldórsson

Nýr samningur um Landgræðsluskóga var undirritaður mánudaginn 11. febrúar og felur hann í sér áframhaldandi stuðning ríkisins við verkefnið, sem hefur það að markmiði, eins og segir í samningum „að græða lítt og ógróið land með fjölbreyttum skógum og stuðla þannig að ræktun skóga til úti­vist­ar fyrir almenning, endurheimt vistkerfa og eflingu líffræðilegrar fjölbreytni og framkvæmd stefnu íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum, sem og að vinna að framkvæmd laga um skógrækt og laga um landgræðslu“.

F.v. Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Aðalsteinn Sigurgeirsson, staðgengill skógræktarstjóra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Árni Bragason landgræðslustjóri við undirritun samningsins. Ljósmynd af vef SÍ: Brynjólfur Jónsson).Undir samninginn skrifuðu Guðmundur Ingi Guð­brandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktar­félags Íslands, ásamt Árna Bragasyni landgræðslustjóra og Aðalsteini Sigurgeirssyni, fagmálastjóra Skóg­ræktarinnar. Landgræðslunni og Skóg­rækt­inni er falið faglegt eftirlit með framkvæmd verk­efnis­ins samkvæmt samningnum.

Landgræðsluskógaverkefnið hófst árið 1990 og var hleypt af stokkunum í tilefni 60 ára afmælis Skógræktarfélags Íslands, í samvinnu skóg­ræktar­félaganna í landinu, Skógræktar ríkisins, Landgræðslu ríkisins og þáverandi land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is. Skógræktarfélag Íslands sér um stjórn verk­efnis­ins, en skógræktarfélög um land allt sjá um framkvæmd þess á hverjum stað, svo sem gróðursetningu og umhirðu. Þinglýstir samningar eru gerðir um öll svæði sem gróðursett er í.

Nýi samningurinn gildir til næstu fimm ára og felur í sér 45-55 milljóna króna árlegt framlag til verkefnisins, alls 260 milljónir á samningstímanum.

Heimild: Vefur Skógræktarfélags Íslands

Texti: Pétur Halldórsson