Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Skógræktin og Samband íslenskra sveitarfélaga boða til kynningarfundar um landsáætlun í skógrækt föstudaginn 11. júní kl. 09-10. Fundurinn verður haldinn með rafrænum hætti á Teams og skráning fer fram á vefnum samband.is.

Tilefni fundarins er að kynna sveitarfélögum landsins drög að landsáætlun í skógrækt 2021-2031, ásamt drögum að umhverfismati áætlunarinnar. Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri og formaður verkefnaráðs landsáætlunar í skógrækt, fer yfir helstu þætti nýrrar áætlunar og þá sérstaklega það sem snýr að sveitarfélögunum. Drögin hafa verið send sveitarfélögunum til umsagnar og er umsagnarfrestur til 18. júní nk. Umsögnum er skilað á vef Skógræktarinnar.

Fundurinn er einkum ætlaður fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga hvarvetna um landið. Hann verður í formi fjarfundar og hægt er að skrá sig á fundinn á vefnum samband.is, sjá hnappinn hér að neðan.

Dagskrá fundarins

  1. Inngangsorð
    Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs Reykjavíkur og skógarbóndi, tilnefnd af SÍS í verkefnaráð landsáætlunar í skógrækt
  2. Landsáætlun í skógrækt 2021-2031 sem stefnumótunar- og stjórntæki fyrir sveitarfélögin
    Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri og formaður verkefnaráðs landsáætlunar í skógrækt
  3. Spurningar og umræður
  4. Fundarlok
 Skráning á fundinn

 

 

 Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson