Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Námskeið í notkun og umhirðu keðjusaga, fellingatækni, öryggisatriðum, líkamsbeitingu og öðru sem nauðsynlegt er að kunna skil á við notkun keðjusaga í þéttbýli og úti í skógi. Námskeiðinu lýkur á einum og hálfum degi við trjáfellingu og grisjun í skógi.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.
 
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inná grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inná hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.
 
Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.
 
Kennari: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá LbhÍ
 
Tími: Fim. 17. október 2019 kl. 9-17.30, fös. 18. okt. kl. 9-17.30 og laugardagur 19. okt. 9-16 (3x) á aðalskrifstofu Skógræktarinnar Egilsstöðum og starfstöð Skógræktarinnar Hallormsstað (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Verð: 48.500 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).

Skráning