Námskeið í trjáfellingum og grisjun með keðjusög verður haldið á Egilsstöðum og Hallormsstað 6.-8. júní. Námskeiðið er öllum opið og skráningarfrestur er til 30. maí. Það hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inná grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inná hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá LbhÍ

Tími: Fim. 6. júní kl. 9-17.30, fös. 7 júní kl. 9-17.30 og laugardagur 8. júní. 9-16 (3x) í starfstöðvum Skógræktarinnar á Egilsstöðum og Hallormsstað (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Verð: 48.500 kr. (gögn og veitingar innifalin í verði).

Skráningarfrestur er til 30. maí.