Kápumynd bókar Einars um íslenska garðsögu
Kápumynd bókar Einars um íslenska garðsögu

Einar E. Sæmundsen landslagsarkitekt flytur fyrirlestur um Guðbjargargarð í Múlakoti laugardaginn 20. júlí kl. 15 í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð.

Fyrirlesturinn nefnist Konan og garðurinn. Hann er byggður á bók Einars, Að búa til lítinn skemmtigarð, sem kom út í lok síðasta árs hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Bókin er yfirlitsverk um sögu og þróun íslenskrar garðhönnunar eða landslagsarkitektúrs. Þar er umhverfismótun sett í samhengi við rætur íslenskrar menningar og tengd alþjóðlegum straumum og stefnum.

Skammt innan við Kvoslæk í Fljótshlíðinni er Guðbjargargarður í Múlakoti, landsfrægur garður frá 1897 sem er opinn gestum. Vesturbærinn í Múlakoti með Guðbjargargarði hefur nú verið friðlýstur sem menningarminjar og þar er hafin endurbygging bæði húsa og garðs. Einar E. Sæmundsen hefur mikinn áhuga á því að reitnum þar sem Skógræktin rak um árabil gróðrarstöð verði einnig gert hærra undir höfði en þar er nú trjásafn með fjölmörgum trjátegundum. Sum trén eru yfir 80 ára gömul.

Fyrirlestur Einars hefst sem fyrr er greint kl. 15 í Hlöðunni að Kvoslæk í Fljótshlíð og er öllum opinn. Að honum loknum verða í boði kaffiveitingar.

Texti: Pétur Halldórsson