Lúpína með lerki á Hólasandi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Lúpína með lerki á Hólasandi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson auglýsir rannsóknastyrki í landgræðslu og skógrækt, með sérstakri áherslu á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu. Til úthlutunar verða 5 milljónir króna. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 31. janúar 2019.

Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðum Landgræðslu ríkisins (land.is), Skógræktarinnar (skogur.is) og Skógræktarfélags Íslands (skog.is). Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í einu pappírseintaki og á tölvutæku formi. Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá.

Nánari upplýsingar gefur formaður sjóðsins, Guðbrandur Bynjúlfsson í síma 844 0429. Netfang: buvangur@emax.is.

Umsóknum skal skila til: Landgræðslusjóðs, Þórunnartúni 6, 105 Reykjavík. Skrifa skal skýrt á umslag: „Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson“.