Í ár eru 70 ár liðin frá því að Heiðmörk var vígð við hátíðlega athöfn. Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til fjölbreyttrar dagskrár til að fagna afmælinu. Nýverið voru sjö stór tré gróðursett á Vígsluflöt í tilefni afmælisins, eitt fyrir hvern áratug sem liðinn er frá opnun Heiðmerkur. Borgarstjórinn í Reykjavík tók þátt í gróðursetningunni.

Frá þessu var sagt á fréttavefnum Vísi. Á vef Skógræktarfélags Reykjavíkur, heidmork.is, segir frá því að dagskránni á afmælisárinu sé ætlað að efla skógarmenningu með stórum og smáum viðburðum allt afmælisárið. Þar sem ekki þykir ráðlegt að stefna fjölmenni saman út frá sóttvarnasjónarmiðum, verða viðburðir minni en upphaflega stóð til. Vonir félagsins standa þó til þess að sem fólk geti engu að síður notið útivistar á Heiðmörk, þótt í minni hópum sé.

Vegna óvenjulegra aðstæðna verður sérstök áhersla lögð á fræðslu og miðlun. Fjallað verður um Heiðmörk í tveimur útvarpsþáttum síðsumars og ítarleg umfjöllun um sögu Skógræktarfélags Reykjavíkur og Heiðmerkur verður birt á vef félagsins. Skógræktarfélagið stendur einnig fyrir sögudagatali þar sem birtar verða myndir og myndskeið úr sögu félagsins. Hægt er að fylgjast með afmælisdagatalinu á Facebook, Instagram og á heidmork.is. Fyrsta færsla dagatalsins er myndskeiðið hér að neðan, sem sýnir vígslu Heiðmerkur, 25. júní 1950.

Dagsetning viðburða verður auglýst í tölvupósti til félagsmanna Skógræktarfélagsins, á samfélagsmiðlum og vef félagsins.

 

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson