Wiki-mynd af pxhere.com.
Wiki-mynd af pxhere.com.

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður dagsnámskeið í maí þar sem farið verður yfir það hvaða áætlanir eru háðar umhverfismati áætlana og hvaða ferli slíkar áætlanir skuli fylgja. Jafnframt verður farið yfir innihald umhverfisskýrslna sem fylgja slíkum áætlunum. Ólafur Árnason, umhverfis- og landfræðingur kennir á námskeiðinu sem haldið verður á Keldnaholti í Reykjavík 17. maí.

Brýnt er að skipulagsfræðingar og aðrir sem vinna að skipulagsmálum hafi þekkingu á því sem máli skiptir og til hvers þurfi einkum að horfa þegar unnar eru umhverfisskýrslur.

Á námskeiðinu verður farið yfir það hvaða áætlanir eru háðar umhverfismati áætlana, hvaða ferli slíkar áætlanir skulu þá fylgja og farið yfir innihald umhverfisskýrslna sem fylgja slíkum áætlunum.

Þeir nemendur sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LbhÍ sækja sama námskeið og þeir sem skráðir eru í meistaranám í skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Lög um umhverfismat áætlana tóku gildi árið 2006 á Íslandi og taka þau meðal annars til skipulags sem unnið er samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.  Svæðis- aðal- og deiliskipulag sem uppfyllir ákveðin skilyrði er háð ferli umhverfismats áætlana. 

Í lok námskeiðs á nemandi að:

  • Kunna skil á lagaumhverfi sem hefur áhrif á umhverfisskýrsluna
  • Hafa þekkingu á undirstöðuatriðum umhverfismats áætlana og hvenær slíkt ferli á við
  • Hafa þekkingu á hvað umhverfisskýrsla er og hver sé tilgangur hennar
  • Hafa faglega færni til að taka tillit til þeirra forsendna sem skipta máli þegar unnin er umhverfisskýrsla
  • Átta sig á því hvernig nýta má umhverfisskýrslu við ákvarðanatöku og valkostagreiningu þegar unnið er skipulag
  • Öðlast reynslu á að takast á við raunveruleg dæmi
  • Þjálfa framsetningu í mynd og máli

Tími: 17. maí, kl. 9-17 hjá LbhÍ á Keldnaholti í Reykjavík.

Verð: 24.500 kr. (hádegismatur og kaffiveitingar innifaldar).