Frá gróðursetningardegi í Loftslagsskógi Reykjavíkur. Ljósmynd: Skógræktarfélag Reykjavíkur
Frá gróðursetningardegi í Loftslagsskógi Reykjavíkur. Ljósmynd: Skógræktarfélag Reykjavíkur

Skógræktarfélag Reykjavíkur efnir til gróðursetningardags laugardaginn 14. ágúst þar sem höfuðborgarbúum gefst kostur á að leggja sitt af mörkum í að rækta útivistarskóg framtíðarinnar í hlíðum Úlfarsfells.

Skógfræðingar kenna þátttakendum grundvallaratriði í gróðursetningu og bjóða upp á áhugaverðan fróðleik. Kennsla hefst samkvæmt eftirfarandi dagskrá og hvetur félagið fólk að mæta á þeim tímum svo allt gangi vel fyrir sig og allir fái kennslu:

10.00 - Kennsla í rjóðrinu og gengið saman á gróðursetningarsvæði
11.00 - Kennsla í rjóðrinu og gengið saman á gróðursetningarsvæði
13.00 - Kennsla í rjóðrinu og gengið saman á gróðursetningarsvæði
14.30 - Kennsla í rjóðrinu og gengið saman á gróðursetningarsvæði

Til að komast að gróðursetningarsvæðinu er ekið eftir Vesturlandsvegi að Lambhagavegi, sem liggur upp að Bauhaus-versluninni. Á hringtorginu bak við Bauhaus er beygt hægra megin inn á malarveg sem liggur að gróðursetningarsvæðinu.

Loftslagsskógar eru samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Með þeim er ætlunin að binda kolefni á móti því sem losað er með starfsemi borgarinnar. Um leið verða til nýir útivistarskógar í borgarlandinu sem veita kærkomin tækifæri til útiveru og draga úr roki.

Til að standa straum af kostnaði er þátttökugjald 4.000 fyrir fjölskyldu en frítt fyrir félagsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur og fjölskyldur þeirra.

Þátttakendur eru hvattir til að huga að sóttvörnum,  halda hæfilegri fjarlægð og gæta að hreinlæti. Viðburðurinn er utandyra og ætti að vera auðvelt að komast hjá mannþröng. Sprittbrúsar verða á staðnum, segir á síðu viðburðarins á Facebook.

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson