Björn Bjarndal Jónsson
Björn Bjarndal Jónsson

Björn Bjarndal, skógarverkfræðingur og fyrrverandi verkefnastjóri hjá Skógræktinni, talar um verðmæti nytjaskóga í lífsstílskaffi Borgarbókasafnsins að Gerðubergi í Reykjavík miðvikudagskvöldið 10. febrúar kl. 20. Nauðsynlegt er að skrá sig ef fólk vill fara á staðinn og hlusta en fundurinn verður líka rafrænn og allir geta fylgst með streymi á Facebook.

Skógar heimsins skapa mikil verðmæti. Miklir möguleikar liggja í nýtingu og úrvinnslu á öðru en timbri, en skógar á Íslandi eru ekki nýttir nema að litlu leyti. Mögulegar afurðir skóga eru ekki alltaf augljósar og þurfa því skógareigendur að þekkja skóga sína vel til að geta hámarkað innkomu þeirra.

Björn Bjarndal Jónsson er skógarverkfræðingur og hefur unnið við nytjaskógrækt vel á þriðja áratug. Björn var verkefnastjóri hjá Skógræktinni í afurðamálum skóga.

Smellið á tengilinn til að skrá ykkur á viðburðinn í Gerðubergi:

Skráning

Og hér er tengill til að tengjast streymi frá fundinum:

Streymi

„Verið öll velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur,“ segir í tilkynningu frá Borgarbókasafninu. Aðgangur er ókeypis.

Texti: Pétur Halldórsson