Ráðstefnan var vel sótt og góður rómur gerður að einstökum fyrirlestrum og ráðstefnunni í heild.

Stofnanirnar kynntu samstarf sitt undir nafni NASL sem hefur verið samstarfsvettvangur þeirra um árabil og gerðu grein fyrir þeim málum sem þar hafa verið til umfjöllunar.

Fjölmargir fagfyrirlestrar voru haldir þar sem vísindamenn stofnananna kynntu niðurstöður rannsókna og ný rannsóknaverkefni.  Stefnt er að útgáfu ráðstefnurits sem kynnt verður hér á skogur.is.