Ráðherra heimsækir stofnanir og verkefni á Hvanneyri

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, heimsótti Vesturlandsskóga og starfsstöðvar Landgræðslunnar og Veiðimálastofnunar á Hvanneyri mánudaginn 12. nóvember. Vesturlandsskógar og Veiðimálastofnun eru meðal þeirra verkefna og stofnana sem fluttust til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins við breytingar á stjórnarráðinu 1. september síðastliðinn.

Heimsóknin hófst á fundi með starfsmönnum Veiðimálastofnunar á Hvanneyri en
áður hefur ráðherra heimsótt höfuðstöðvar stofnunarinnar í Reykjavík. Á fundinum kynntu starfsmenn ráðherra það starf sem unnið er á vegum stofnunarinnar á Hvanneyri, en það lýtur m.a. að vöktun og rannsóknum á fiskistofnum í þeim fjölmörgu veiðiám sem er að finna á svæðinu. Að því loknu var fundað með starfsmönnum Landgræðslunnar á Hvanneyri þar sem ráðherra fræddist m.a. um uppgræðslustarf bænda undir yfirskriftinni Bændur græða landið og um varnir gegn landbroti á vegum Landgræðslunnar.


Í síðari hluta heimsóknarinnar heimsótti ráðherra stjórn og starfsfólk Vesturlandsskóga
þar sem ráðherra var kynnt starfsemi Vesturlandsskóga á Hvanneyri. Að loknum
fundi og hádegisverði á Hvanneyri var farið í heimsókn til Jóns í Deildartungu og skógræktin þar skoðuð. Þá var komið við í Reykholti þar sem séra Geir Waage tók á móti
hópnum og formaður skógræktarfélags Borgarfjarðar, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, fylgdi gestunum um Reykholtsskóg. Heimsókninni lauk með skógargöngu um skógarlönd Steindórsstaðabænda þeirra Guðfinnu Guðnadóttur og Þórarins Skúlasonar. Að lokinni göngu nutu gestirnir veitinga hjá Guðfinnu í gamla húsinu á Steindórsstöðum, sem hefur verið endurbyggt til að hýsa ferðamenn.

Frétt: Vesturlandsskógar