Síðari dagurinn var verklegur og megináherslan lögð á verkliði á borð við tvítoppaklippingu, snyrtin…
Síðari dagurinn var verklegur og megináherslan lögð á verkliði á borð við tvítoppaklippingu, snyrtingu, uppkvistun og val á trjám við millibilsjöfnun

Farið yfir margvíslegan ávinning af góðri skógarumhirðu

„Fátt er yndislegra en að vera úti í skógi og snyrta tré“. Nemendur á námskeiði í ungskógaumhirðu sem haldið var á Héraði um helgina eru algerlega sammála um þessa fullyrðingu enda gátu hvorki þeir né leiðbeinendur hamið sig í skóginum, það var svo gaman.

Í sjötta skiptið á sjö árum voru þau Hlynur Gauti Sigurðsson og Sherry Curl leiðbeinendur á námskeiði í ungskógarumhirðu. Fyrstu fimm skiptin var námskeiðið haldið á vegum Héraðs- og Austurlandsskóga, það fyrsta haustið 2010. Oftast hefur námskeiðið farið fram í kjölfarið af trjáfellingar- og grisjunarnámskeiði sem haldið hefur verið af Björgvini Eggertssyni hjá Landbúnaðarháskóla Íslands en í ár var undantekning frá þeirri venju.


Kennsla fór fram á tveimur dögum. Fyrri dagurinn var innandyra á höfuðstöðvum Skógræktarinnar á Egilsstöðum og var farið vel yfir fræðilegan og fjárhagslegan ávinning skógarumhirðu. Síðari daginn var kennt úti og fór kennslan fram í þjóðskóginum á Höfða. Veðrið var kyrrt og hlýtt og það hélst þurrt allan daginn. Eins og á fyrri námskeiðum var Þröstur Eysteinsson, skógræktarstjóri, með í för seinni daginn en það var verklegur dagur og megináherslan lögð á verkliði á borð við tvítoppaklippingu, snyrtingu, uppkvistun og val á trjám við millibilsjöfnun.

Þátttakendur voru: Róbert Davíðsson, Jakob Þór Davíðsson og Pétur Hjartarson, frá Flögu, Andrés Einarsson frá Bessastöðum, Gísli Örn Guðmundsson og Þórarinn Þórhallsson frá Þorgerðarstöðum, Kristján Jónsson frá Hjartarstöðum, Maríanna Jóhannsdóttir frá Snjóholti og Magnús Karlsson frá Hallbjarnarstöðum.

Til gamans má geta að á fyrsta námskeiðinu 2010 var tekin hópmynd með nýsnyrtan skóg í bakrunni. Þá var skógurinn einstaklega illa á sig komin og trén meira og minna fjölstofna, fjöltoppa, grófgreinótt og bogin. Hópmyndin sem tekin var núna er frá svipuðu sjónarhorni og þar má sjá feikilegan vöxt beinvaxinna lerkitrjáa 7 árum síðar og því um ólíkt betri skóg að ræða en hér áður var lýst. Umhirða ungskóga borgar sig margfalt.




Texti og myndir: Hlynur Gauti Sigurðsson