Rétt vinnubrögð við skógarhögg og grisjun eru mikilvæg, bæði til að árangurinn verði sem bestur og t…
Rétt vinnubrögð við skógarhögg og grisjun eru mikilvæg, bæði til að árangurinn verði sem bestur og til að öryggis sé gætt við störfin. Enginn skyldi nota keðjusög nema vera í fullum keðjusagarklæðum og hafa sótt námskeið.

Námskeið í Hveragerði í janúar

Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands býður í janúar námskeið í trjáfellingu og grisjun með keðjusög. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Námskeiðið er öllum opið en hámarksfjöldi þátttakenda er 12.

Kennslan verður bæði bókleg og verkleg. Fyrsti dagurinn er bóklegur og þar er meðal annars farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu, leyfi og öryggissjónarmið um fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka sagir í sundur. Komið verður inn á hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni ásamt því að nemendur læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og að brýna keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá LbhÍ

Tími: Þri. 24. jan. kl. 9.00-17.30, mið. 25. jan. kl. 9.00-17.30 og fim. 26. jan.. 9.00-16.00 (3x) hjá LbhÍ á Reykjum (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráningarfrestur er til 17. janúar