Frá skógræktar- og landgræðslusvæði á Hólasandi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Frá skógræktar- og landgræðslusvæði á Hólasandi. Ljósmynd: Pétur Halldórsson
 

Ráðherra gefur eigi sjaldnar en á fimm ára fresti út landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt til tíu ára í senn. Í áætlununum tveimur skal kveðið á um framtíðarsýn og stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt með hliðsjón af markmiðum laga um skóga og skógrækt og laga um landgræðslu. Samkvæmt lögum skal ráðherra samræma landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt og er nú unnið að því í matvælaráðuneytinu.

Verkefnisstjórnir um gerð landsáætlunar í skógrækt og landgræðsluáætlunar hafa unnið að gerð tillagna síðan um mitt ár 2019 og hafa skilað tillögum að þessum tveimur áætlunum. Þetta er í fyrsta skipti sem þessar áætlanir eru unnar samkvæmt lögum. Tillögurnar hafa verið kynntar opinberlega ásamt umhverfismati og fylgja með samantektir á helstu athugasemdum og viðbrögðum við þeim. Minnihlutaálit barst ráðuneytinu frá verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar í skógrækt.

Verkefnisstjórn um gerð landsáætlunar í skógrækt var þannig skipuð:

Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri, formaður, Bjarni Diðrik Sigurðsson prófessor, Jón Ásgeir Jónsson skógfræðingur, Maríanna Jóhannsdóttir skógarbóndi, Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur, Tómas Grétar Gunnarsson vistfræðingur, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs Reykjavíkur, tilnefnd af SÍS. Ritarar verkefnisstjórnar voru Hreinn Óskarsson og Hrefna Jóhannesdóttir, skógfræðingar.

Verkefnisstjórn um gerð landgræðsluáætlunar var þannig skipuð:

Árni Bragason, landgræðslustjóri, formaður, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir sveitastjórnarfulltrúi, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Guðrún Tryggvadóttir frá Bændasamtökum Íslands, Ása L. Aradóttir prófessor og Tryggvi Felixson auðlindahagfræðingur. Í mars árið 2020 tók Oddný Steina Valsdóttir sæti Guðrúnar Tryggvadóttur. Guðmundur Halldórsson sérfræðingur og Þórunn W. Pétursdóttir sviðstjóri unnu með verkefnisstjórninni.

Landsáætlun í skógrækt - tillaga verkefnisstjórna

Landsáætlun í skógrækt_umsagnir og viðbrögð_samantekt

Minnisblad Landsáætlun skógrækt

Landgræðsluáætlun - tillaga verkefnisstjórnar

Umhverfismat tillögu landgræðsluáætlunar

Landsáætlun í skógrækt - tillaga verkefnisstjórna

Umsagnir við tillögu verkefnisstjórnar og viðbrögð