Þröstur Eysteinsson er trjáerfðafræðingur og hefur stýrt kynbótum á lerki í Fræhöllinni á Vöglum í F…
Þröstur Eysteinsson er trjáerfðafræðingur og hefur stýrt kynbótum á lerki í Fræhöllinni á Vöglum í Fnjóskadal. Hér er hann með frjó af evrópulerki í bakka og penslar því á rússalerki til að búa til lerkiblendinginn 'Hrym'.

Tekur við starfinu um áramótin

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Þröst Eysteinsson í embætti skógræktarstjóra til fimm ára. Þröstur hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins.

Þröstur var annar tveggja umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfasta til að gegna embættinu. Hann lauk doktorsprófi í skógarauðlindum frá háskólanum í Maine í Bandaríkjunum og meistaragráðu í skógfræði frá sama skóla. Áður en hann tók við stöðu sviðsstjóra þjóðskóganna starfaði hann sem fagmálastjóri Skógræktar ríkisins og þar á undan sem sérfræðingur hjá rannsóknarstöð sömu stofnunar, sem og héraðsfulltrúi Landgræðslu ríkisins á Húsavík.

Þá hefur Þröstur skrifað fjölda ritrýndra fræðigreina um skógrækt og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á sviði skógræktar.

Þröstur er skipaður í embætti skógræktarstjóra frá 1. janúar næstkomandi og er honum m.a. falið að fylgja eftir nýlegum tillögum starfshóps um sameiningu skógræktarstarfs ríkisins í eina stofnun.

Þröstur er kvæntur Sherry Curl og eiga þau tvö uppkomin börn.

Frétt af vef umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
Mynd: Pétur Halldórsson