Notendur rafræns dagatals Skógræktarinnar geta nú skipt um skjámynd á tölvum sínum og sett inn dagatal aprílmánaðar. Á því er ljósmynd Atla Arnarsonar ljósmyndara af sveppnum guleggjahelmu.

Sveppur mánaðarins var myndaður í skóginum á Sauðási í Heiðmörk. Guleggjahelma er breytileg tegund sem er algeng í birki- og blandskógum um allt land. Hún er óæt.

Heimild: Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur

Dagatal Skógræktarinnar 2021 er aðgengilegt á rafrænu formi á vef Skógræktarinnar. Annars vegar er hefðbundið dagatal sem t.d. má prenta út. Hins vegar eru skjámyndir fyrir hvern mánuð ársins. Þessum skjámyndum má hlaða niður til uppsetningar á skjáborði tölvu og þar með er dagatal viðkomandi mánaðar alltaf innan seilingar.

Dagatal Skógræktarinnar 2021

Texti: Pétur Halldórsson