Við járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga stendur nú gríðarlega stór timburstafli. Timbrið, sem alls er um 1.000 rúmmetrar, bíður eftir að verða kurlað og notað sem kolefnisgjafi í járnblendiverksmiðjunni. Skógrækt ríkisins skrifaði í sumar undir samning við verksmiðjuna um 1.000 tonn af grisjunarviði sem nota á í stað jafðefnaeldsneyta í tilraunaskyni.

Í staflanum eru nú rúmlega 800 tonn af timbri og því von á tæplega 200 til viðbótar á næstu vikum. Timbrið kemur út Stálpastaðaskógi í Skorradal þar sem mikið grisjunarátak hefur staðið yfir í vetur. Stærsti hluti timbursins er sitkagreni en auk þess er í honum að finna stafafuru. Eins og sjá má á myndunum eru bolirnir nokkuð gildir, enda orðin 50 ár síðan trjánum var plantað á Stálpastöðum.


frett_15012010_2_b

Á myndinni má sjá Þostein Hannesson, starfsmann Grundartangaverksmiðjunnar og Arne Johnsen, tengdaföður skógræktarstjóra, framan við timburstæðurnar.



Myndir: Jón Loftsson, skógræktarstjóri
Texti: Esther Ösp Gunnarsdóttir, kynningarstjóri Skógræktar ríkisins.