Blágresið blíða. Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir
Blágresið blíða. Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir

Umsóknarfrestur til 11. júlí

Skógræktin óskar eftir að ráða sviðstjóra á samhæfingarsviði stofnunarinnar. Samhæfingarsvið er nýtt svið innan Skógræktarinnar sem  fæst við stjórnsýslu, skipulagsmál, kynningarmál og fræðslu á sviði skógræktar.

Leitað er að öflugum einstaklingi sem hefur reynslu á sviði skógræktar, stjórnunar og skipulagsmála og er tilbúinn til að takast á við umfangsmikil verkefni í krefjandi og breytilegu umhverfi. Sviðstjóri samhæfingarsviðs heyrir beint undir skógræktarstjóra og verður hluti af framkvæmdaráði stofnunarinnar.

Helstu verkefni:

  • Forysta um gerð landsáætlunar og landshlutaáætlana í skógrækt
  • Dagleg stjórnun samhæfingarsviðs
  • Gerð rekstrar- og starfsáætlunar sviðsins
  • Fræðslumál og upplýsingamiðlun, þ.m.t. vefsíða og útgáfa
  • Ábyrgð á opinberum skipulagsmálum, þ.m.t. málum er varða svæðis-, aðal-, og deiliskipulagsáætlanir, mat á umhverfisáhrifum, framkvæmdaleyfi og umsagnir
  • Samhæfing á úttektum og árangursmati
  • Ábyrgð á gæðastarfi Skógræktarinnar
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur og eiginleikar:

  • Skógfræðimenntun og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Reynsla af stjórnun og áætlanagerð
  • Leiðtogahæfileikar
  • Færni í að koma upplýsingum frá sér í rituðu og töluðu máli
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr 70/1996.

Umsóknarfrestur er til og með 5. júlí nk. Starfið er á aðalskrifstofu Skógræktarinnar eða annarri starfstöð stofnunarinnar eftir samkomulagi. Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilsskrá og staðfestingu á menntun á heimilisfang aðalskrifstofu: 

Skógræktin, b/t skógræktarstjóra
Miðvangi 2-4
700 Egilsstöðum

Nánari upplýsingar veita: Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri (throstur@skogur.is) eða Gunnlaugur Guðjónsson fjármálastjóri (gulli@skogur.is)

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið.

Skógræktin er ný ríksstofnun sem formlega verður til 1. júlí 2016 við sameiningu Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefna í skógrækt. Á komandi mánuðum verða innleiddar breytingar á starfseminni í átt að betri árangri í skógræktarstarfinu. Sviðstjórar Skógræktarinnar vinna að innleiðingu breytinganna ásamt fagmálastjóra og skógræktarstjóra.

Hlutverk Skógræktarinnar er að hafa forystu um uppbyggingu skógarauðlindar á Íslandi með því að kalla eftir víðtækri samvinnu við skógargeirann, vinna að verndun og friðun skóga og kalla fram hagrænan, umhverfislegan og samfélagslegan ávinning af sjálfbærri nýtingu skóga.

Skógræktin rækir hlutverk sitt með því að veita framlög og ráðgjöf til skógræktenda, reka þjóðskógana, sinna rannsóknum og hafa forystu um að afla og miðla þekkingu á skógrækt á Íslandi. Jafnframt með því að hvetja til og eftir atvikum leiða samvinnu og ráðgjöf á sviði skógræktar á Íslandi með áherslu á sjálfbærni, eflingu byggðar, verðmætasköpun og mótvægisaðgerðir vegna loftslagsbreytinga.