Trén líklega ónýt á um tveimur þriðju hlutum reitsins

Hálfrar aldar gamall furureitur í Þórðarstaðaskógi stórskemmdist í snjóflóði sem féll í kjölfar stórhríðarinnar fyrir síðustu helgi, 20. og 21. mars. Hvort hægt verður að nýta viðinn af brotnu trjánum kemur ekki í ljós fyrr en snjóa leysir.

Ekki er vitað nákvæmlega hvernær snjóflóðið féll en Sigurður Skúlason, fráfarandi skógarvörður á Vöglum, man ekki eftir því að flóð hafi fallið á þessum stað áður. Beggja vegna við hafi hins vegar fallið spýjur. Þetta flóð kom úr gili ofan skógarins, fór niður milli hóla og breiddi úr sér þar fyrir neðan. Sigurður segir að víða í skóginum séu merki um snjóbrot enda snjóþungur vetur í Fnjóskadal og mikið fannfergi í skóginum núna. Við fyrstu sýn virðist sem um tveir þriðju reitsins hafi skemmst.

Reiturinn sem skemmdist í umræddu snjóflóði var upphaflega kvæmatilraun með fjórum kvæmum af stafafuru, Bennet Lake, Canmore S., Upper Lake Creek og Carcross. Skógræktarfólki þykir skaði ef einhver þriggja síðasttöldu kvæmanna hafa alveg þurrkast út í flóðinu en Sigurður segir nokkra von fólgna í því að flóðið skyldi falla á norðanverðan reitinn. Þar er mest af Bennet Lake kvæminu sem til er annars staðar í ræktun. Hin kvæmin eru suðlægari kvæmi og sjaldgæfari hérlendis. Það er því meira tjón ef eitthvað af því hefur farið alveg forgörðum í flóðinu.

Stafafuran í reitnum var grisjuð fyrir tveimur árum og þá mældust trén 10-12 metra há. Sigurður segir ómögulegt að sjá fyrr en snjóa leysir hvort viðurinn úr þessum trjám er nýtanlegur. Ef bolirnir eru heillegir og hægt að saga þá niður í þriggja metra langa búta má selja þá til Elkem á Grundartanga en erfiðara verður að vinna verðmæti úr þessu eftir því sem trén eru meira brotin. Ljóst er, segir Sigurður, að hreinsun skógarins verður mikið og erfitt verk, jafnvel hættulegt. Þegar trjábolir liggja þvers og kruss þarf að fara að með ítrustu gát við hreinsun og skógarhögg.

Sigurður segir reyndar að stafafurureiturinn í Þórðarstaðaskógi sé ekki það eina sem bíði hreinsunar í sumar. Víða hafi tré brotnað undan snjó í skógum Fnjóskadals í vetur. Hann segist sjaldan séð annað eins á 27 ára ferli sínum sem skógarvörður á Vöglum enda fannfergið með mesta móti í dalnum núna. Jafnfallinn snjór mældist 153 sentímetrar við Vaglir á mánudagsmorgun, 24. mars.

Á meðfylgjandi myndum má sjá fannfergið í Fnjóskadal sem kaffærir líka póstkassa ef svo ber undir.

Myndir: Sigurður Skúlason og Margrét Guðmundsdóttir