Það er Hreinn Óskarsson, skógarvörður, sem hlýtur Uppsveitabrosið 2009 fyrir hönd Skógræktar ríkisins á Suðurlandi.

Skógarnir eru orðnir vinsælt útivistarsvæði allt árið um kring, jafnt fyrir heimamenn sem ferðamenn. Öll samvinna við Skógræktina hefur verið einstaklega góð í uppsveitunum.
Haukadalsskógur og Þjórsárdalsskógur eru vinsæl útivistarsvæði og þar er unnið metnaðarfullt starf við uppbyggingu. Í skógunum eru m.a. merktir göngustígar og einnig sérhannaðir stígar fyrir hjólastóla.

Uppsveitabrosið sjálft er óáþreifanlegt, en því fylgir ávallt hlutur sem handverks- eða listamaður í uppsveitum Árnessýslu býr til hverju sinni. Að þessu sinni er það listakonan Anna Magnúsdóttir á Flúðum og verkið er máluð mynd af tré í haustlitum sem ber heitið Úr sálargarðinum. Það er vel við hæfi að færa Skógræktinni slíkt tré.

Uppsveitabrosið er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki. Bros frá uppsveitunum til þeirra sem hafa lagt ferðaþjónustunni á svæðinu lið á jákvæðan uppbyggilegan hátt og stuðlað að samvinnu. Markmiðið er að senda út jákvæð skilaboð og vekja athygli á því sem vel er gert. Hugmyndin kviknaði í stefnumótunarvinnu 2003 og er þetta í sjötta sinn sem brosið er afhent.