Keppt í axarkasti, bolahöggi og efnt til ýmissa annarra viðburða og skemmtunar

Annað árið í röð efnir Skógræktarfélag Reykjavíkur til Skógarleikanna í Heiðmörk. Hátíðin verður í Furulundi í Heiðmörk laugardaginn 16. júlí kl. 14-17.

Nokkrir af færustu skógarhöggsmönnum Suður- og Vesturlands munu leiða saman hesta sína í hefðbundnum skógarhöggsgreinum svo sem axarkasti, bolahöggi og af-kvistun trjábola. Í leikslok fá gestir að spreyta sig í axarkastinu. Stjórnandi leikanna er skógfræðingurinn Gústaf Jarl og dómari er Björn Bjarndal eða hinn eini sanni Skógar-Björn.

Furulundur verður uppfullur af ævintýrum þennan dag. Gestir fá tækifæri til að spreyta sig í tálgun í ferskan við beint úr skóginum undir leiðsögn tálgunarmeistarans Valdórs Bóassonar. Eldsmiðurinn Einar Gunnar mun sýna listir sínar og hamra heitt járnið yfir logandi eldi. Borðtennisborð og ýmis skógarleiktæki eru einnig í lundinum.

Gestum er boðið í grillveislu þar sem grillað verður meðal annars yfir varðeldi skógarbrauð á priki og rjúkandi ketilkaffi verður einnig á boðstólum. Skógræktarfélagið bíður alla hjartanlega velkomna og vonast til að gestir á öllum aldri geti átt ævintýralega upplifun í Furulundi þennan sumardag.

Allar frekari upplýsingar veitir Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir í síma 690-9874.