Sæl í skógi
Sæl í skógi

Í það minnsta 300 manns tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá

Skógardagur Norðurlands var haldinn í Vaglaskógi laugardaginn 11. júlí 2015 í þokkalegu veðri, norðaustan golu og lítils háttar rigningu af og til. Ætla má að í það minnsta 300 manns hafi sótt viðburðinn. Í boði var gönguferð um trjásafnið, leiðsögn um fræhúsið, ratleikur, útileikir og leiktæki fyrir börnin, lifandi tónlist, grisjunarvél var kynnt og sýnd að störfum, ketilkaffi, lummur, pinnabrauð og fleiri veitingar. Einnig kynntu Sólskógar og Jötunn vélar starfsemi sína og vörur. Allir fóru glaðir og ánægðir heim eftir ánægjulegan dag.

Aðstandendur Skógardags Norðurlands voru Skógrækt ríkisins, Norðurlandsskógar, Skógræktarfélög Eyfirðinga og Suður-Þingeyinga, Skógfræðingafélag Íslands, Sólskógar og Jötunn vélar.

Texti og mynd: Pétur Halldórsson