Selskógur úr lofti. Ljósmynd: Kristín Jónsdóttir
Selskógur úr lofti. Ljósmynd: Kristín Jónsdóttir

Laugardaginn 23. júní, verður haldinn skógardagur í Selskógi í Skorradal. Verkefnið er samstarfsverkefni þriggja máttarstólpa í skógrækt á Vesturlandi, Skógræktarinnar, Skógræktarfélags Borgarfjarðar og Félags skógareigenda á Vesturlandi. Skógardagurinn er liður í átaksverkefninu Líf í lundi. Tilgangur skógardagsins er að kynna fólki skóg og hafa gaman saman í fallegu og friðsælu umhverfi.

Dagskrá skógardagsins í Selskógi hefst klukkan 13 og stendur til kl. 16. Boðið verður upp á brauð og drykki þar sem brauð verður bakað á grein yfir eldi, ketilkaffi, kakó og kalda drykki. Tálgunarnámskeið verður í gangi þar sem þátttakendur geta lært að búa til hluti úr skógarviði. Skógarganga verður farin þar sem fólk getur lært að greina tegundir trjáa. Reynir Hauksson flytur tónlist, Ása Erlingsdóttir leiðir leiki fyrir börn og happdrætti verður í boði.

Selskógur er í landi Indriðastaða, vestan við Litlu-Drageyri.

Þjóðskógurinn Selskógur