Sveppir eru nú þegar farnir að sjást um allt land en þó í litlu magni enn sem komið er. Bestu vaxtarskilyrði sveppa eru í hlýju og raka, og segjast skógarverðir Skógræktar ríkisins nú bíða rigningarinnar svo sveppirnir nái sér vel á strik. Búast má við miklum sveppavexti eftir rigningar á næstu vikum og því er gott að fara að huga að sveppatínslu. 

 

Áhugi á sveppatínslu fer sífellt vaxandi, auk þess sem sveppategundum hér á landi fjölgar og útbreiðsla þeirra eykst. Í skógum víða um land er nú að finna fjölda sveppa frá miðju sumri og fram á haust. Við sveppatínslu er að mörgu að hyggja. Þó það sé bæði skemmtilegt og nytsamlegt að tína sveppi til matar, þá er nauðsynlegt að læra að þekkja þá sveppi sem ætir eru, matsveppina. Einnig þarf að huga að ýmsu hvað varðar hreinsun og geymslu sveppanna svo þeir njóti sín sem best við matargerð.


Því miður eru handbækur um sveppi nú illfáanlegar í bókabúðum og því hefur Skógrækt ríkisins tekið saman stuttan leiðbeiningarbækling sem áhugafólk um sveppatínslu getur stuðst við. Honum er hlaðið niður og hann svo hægt að prenta út og taka með sér í sveppaferðir.

(Ath. Nauðsynlegt er að vera með Acrobat Reader í tölvunni til að geta nálgast bæklinginn. Smelltu hér til að hlaða niður Acrobat Reader.)

 

Einnig vill Skógrækt ríkisins benda á að Náttúrufræðistofnun Íslands hefur skráð margar tegundir sveppa og mögulegt er að skoða útbreiðslu þeirra á Plöntuvefsjá stofnunarinnar.