Skógrækt ríkisins og Þjórsárskóli hafa gerðu í gær með sér samning um nýtingu þjóðskógarins í Þjórsárdal í skólastarfi Þjórsárskóla.

 

Allur skólinn, bæði starfsfólk og nemendur, tóku þátt í verkefnum í Þjórsárdalsskógi þennan tímamótadag í samstarfi Skógræktar ríkisins á Suðurlandi, Lesið í skóginn-verkefnisins og Þjórsárskóla. Í samningnum er kveðið á um hvað skuli lögð áhersla í samstarfinu en vonast er til að reynslan muni m.a. svara því hvernig nýta megi sem best þjóðskóg í skólastarfi og einnig hvernig hann getur nýst nærsamfélaginu. Samstarfinu er ætlað að standa í tvö ár og verða að því loknu teknar saman upplýsingar og þeim miðlað til þeirra sem helst geta nýtt sér þær innan skógræktar og skólastarfs.

 

Nemendum var skipt upp í 4 hópa sem unnu að mismunandi verkefnum en færðust síðan á milli þannig að allir nemendur höfðu komið að fjórum ólíkum verkefnu í lok dags. Hóparnir voru blandaðir í aldri en í einum hópnum var stígur snyrtur og efnið klippt niður í gulvíðigræðlinga sem ætlunin er að nota til að rækta upp skólalóðina til að auka skól og útivistargildi hennar. Á annari stöð fór fram lummubakstur, á þeirri þriðju föðmuðu nemendur kært tré og þeirri fjórðu var byggt hús úr greinum.

 

Í tilefni undirskriftarinnar var sungið og flutt leikrit um skógarferð nemenda þar sem m.a. var gert grín að nemendum og starfsfólki sem ýmisst gleymdi að klæða sig rétt eða á annan hátt sýndu sérstaka hegðun sem ekki hentar í útinámi. Að lokum tóku allir þátt í skógarhlaupi og fóru vel heitir í skólabílinn á leið heim eftir eftirminnilegan skógardag í Þjórsárdalsskógi.


frett_22042009(6).jpg

frett_22042009(5).jpg

frett_22042009(4).jpg

frett_22042009(2).jpg

frett_22042009(3).jpg


 

Texti: Ólafur Oddsson, fræðslustjóri Skógræktar ríkisins.

Myndir: Ólafur Oddsson og Jóhannes Sigurðsson, umsjónarmaður Skógræktar ríkisins í Þjórsárda