Rúnar Ísleifsson skógverkfræðingur hefur verið ráðinn skógarvörður á Norðurlandi frá og með 1. apríl næstkomandi með aðsetur á Vöglum í Fnjóskadal. Fjórir sóttu um og af þeim var Rúnar metinn hæfastur. Rúnar tekur við starfinu af Sigurði Skúlasyni sem verið hefur skógarvörður á Vöglum frá 1987.

Rúnar er skógverkfræðingur að mennt. Hann lauk grunnnámi í skógrækt frá Östboskolan í Värnamo í Svíþjóð 1986 og prófi í skógtækni frá sama skóla tveimur árum síðar. Árið 1989 lauk hann svo B.Sc.-prófi í skógverkfræði frá sænska landbúnaðarháskólanum, í Skinnskatteberg. Hann hefur viðamikla reynslu af skógræktarstörfum hérlendis og þá aðallega á Austur- og Norðurlandi. Hann var skógræktarráðunautur Skógræktar ríkisins á Austurlandi 1990-1997, þá skógræktarráðunautur Héraðsskóga til 2002 þegar hann tók við framkvæmdastjórn Barra hf. á Egilsstöðum. Frá árinu 2005 hefur hann verið skógræktarráðunautur Skógræktar ríkisins með aðsetur á Norðurlandi.

Rúnar segir að mörg spennandi viðfangsefni séu fram undan hjá Skógrækt ríkisins á Norðurlandi sem tengjast grisjun, viðarvinnslu og bættri aðstöðu á útvistarsvæðum. Rúnar hyggst á vormánuðum flytja búferlum ásamt fjölskyldu sinni frá Espihóli í Eyjafjarðarsveit og að Vöglum í Fnjóskadal. Hann er reyndar alinn upp í skóginum og þekkir hann betur en margir aðrir því faðir hans, Ísleifur Sumarliðason, var skógarvörður á Vöglum í 38 ár, frá 1949-1987.