Sérstök áhersla á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu

Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson auglýsir eftir umsóknum um rannsóknarstyrki í landgræðslu og skógrækt. Sérstök áhersla er lögð á vistfræði lúpínu og landgræðsluskógrækt með lúpínu. 

Til úthlutunar verða um fjórar milljónir króna. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 20. janúar 2014.

Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila í einu pappírseintaki og á tölvutæku formi (á geisladiski sem rtf-, pdf- eða Word-skjal). Ófullgerðum umsóknum verður vísað frá.

Umsóknum skal skila til Landgræðslusjóðs, Skúlatúni 6, 105 Reykjavík. Skrifa skal skýrt á umslag: „Minningarsjóður Hjálmars R. Bárðarsonar og Else S. Bárðarson“.

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Stálpastaðir