Mynd: Valgerður H. Rúnarsdóttir
Mynd: Valgerður H. Rúnarsdóttir


Ráðstefnan verður haldin í Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri miðvikudaginn 12. maí kl. 09:00-16:00.

Að frumkvæði umhverfisráðuneytisins verður efnt til ráðstefnu í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands um votlendi og endurheimt þess. Titill ráðstefnunnar er Endurheimt votlendis - hvað þarf til? Ráðstefnan er haldin í tilefni alþjóðlegs árs líffræðilegrar fjölbreytni og í ljósi vaxandi umræðu um mikilvægi votlendis í loftslagsbreytingum. 

Meðal fyrirlesara er Hans Joosten, prófessor við Greifswaldháskóla í Þýskalandi, sem er mjög virtur sérfræðingur í endurheimt votlendis á alþjóðavettvangi. Hann hefur verið leiðandi í alþjóðlegum umræðum um þátt votlendis í loftslagsbreytingum. Hann hefur jafnframt tekið virkan þátt í starfi öflugustu félagasamtaka um málefni votlendis Wetland International.

Votlendi eru algeng landgerð á Íslandi og talsvert hefur verið fjallað um mikilvægi þess að endurheimta röskuð votlendi til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið og til að efla líffræðilegan fjölbreytileika. Á ráðstefnunni verður lögð áhersla á að fjalla um möguleika á endurheimt votlendis og hvernig best megi vinna að því verkefni. Jafnframt mun umhverfisráðherra tilkynna um ný votlendissvæði á lista Ramsarsamningsins. Markmið Ramsarsamningsins er að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega sem búsvæði fyrir votlendisfugla. Nú eru þrjú votlendissvæði hér á landi á lista samningsins. Það eru Þjórsárver, Mývatn- og Laxársvæðið og Grunnafjörður.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku til umhverfisráðuneytisins í síðasta lagi mánudaginn 10. maí á netfangið postur[hjá]umhverfisraduneyti.is

Dagskrá

09:00
Ávarp Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
09:10 Votlendi og votlendissetur. Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.
09:20
Global peatlands and climate change: emissions and mitigation options. Hans Joosten prófessor, Greifswald háskóla, Þýskalandi.
10:15 
Kaffi 
10:30

Vernd og endurheimt votlendis – staða þekkingar          

Málstofustjóri: Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu.

  • 10:30 - Votlendi á Íslandi – yfirlit. Hlynur Óskarsson, LBHÍ
  • 10:50 - Landnýting á framræstu votlendi. Áslaug Helgadóttir, LBHÍ og Björn Traustason, Skógrækt ríksins
  • 11:10 - Votlendi, náttúruvernd og líffræðilegur fjölbreytileiki. Svenja Auhage, Náttúrufræðistofnun Íslands
  • 11:30 - Votlendi og loftslagsbreytingar. Jón Guðmundsson, LBHÍ
  • 11:50 - Umræður og samantekt málstofu
12:30

Tilnefning nýrra Ramsarsvæða

Hádegishlé og undirritun nýrra Ramsarsvæða. Votlendissvæðin á Hvanneyri skoðuð.
14:00 

Endurheimt votlendis – hvað þarf til     

Málstofustjóri: Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.

  • 14:00 - Endurheimt votlendis – sýn og samstarf við landeigendur. Eiríkur Blöndal, Bændasamtökin
  • 14:20 - Endurheimt votlendis - leiðir til árangurs. Daði Már Kristófersson, Háskóla Íslands
  • 14:40 - Dæmi um endurheimt votlendis:
    - Friðland í Flóa. Jóhann Óli Hilmarsson, Fuglavernd.
    - Skógey við Hornafjörð. Landgræðsla ríksins.
    - Fossá í Vestur Barðastrandarsýslu. Bjarni Össurarson.
    - Framengjar og Nautey í Mývatnssveit. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson.
  • 15:30 - Umræður og samantekt málstofu
16:00
Ráðstefnulok


Mynd: Valgerður H. Rúnarsdóttir