Svanhildur Svavarsdóttir, ráðherra, með gjafir sem Skógrækt ríkisins færði henni að skilnaði: bókina…
Svanhildur Svavarsdóttir, ráðherra, með gjafir sem Skógrækt ríkisins færði henni að skilnaði: bókina Hallormsstaður í skógum, allskyns gagnlegt lesefni og flösku af birkivíni sem stofnun framleiddi í tilraunaskyni í fyrra.

Nýr umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, heimsótti aðalskrifstofur Skógræktar ríkisins á Egilsstöðum í gær. Með í för voru fimm aðrir fulltrúar ráðuneytisins.

Auk þess að heimsækja aðalskrifstofurnar sjálfar var farið í skoðunarferð um  Hallormsstaðaskóg í miklu blíðviðri. Fræddust ferðalangarnir þar m.a. um grisjunartilraunir, viðarvinnslu og afurðir. Ráðherra hringdi í skóginn og trjásafnið var skoðað.

Að skilnaði gaf Skógrækt ríkisins ráðherra bókina Hallormsstaður í skógum, ýmislegt fræðandi lesefni og flösku af birkivíni sem stofnunin gerði tilraunir til að framleiða á síðasta ári.

Nokkrar myndir frá heimsókninni má sjá í myndaalbúmi.