Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, vígði pakkhúsið í Vatnshorni í Skorradal um helgina eftir endurgerð þess. Athöfnin var einn af hápunktum viðburða á Alþjóðlegu ári skóga hér á landi, enda er um að ræða fyrsta húsið sem alviðað er íslensku timbri og var viðburðurinn því sögulegur sem slíkur.

Skógrækt ríkisins gaf timbur frá Stálpastöðum í Skorradal til verksins, Stefán Ólafsson á Litlu-Brekku hafði veg og vanda af endursmíðinni og Unnsteinn Elíasson, hleðslumeistari frá Ferjubakka, sá um vegghleðslu undir húsið. Skorradalshreppur kostaði niðurtöku þess sem stóð eftir af gamla pakkhúsinu. Félagsskapurinn „Vinir Pakkhússins“ öfluðu síðan fjár til endurbyggingar.

Um 150 manns voru viðstaddir athöfnina, sem fram fór í blíðskaparveðri, þar á meðal fjöldi gesta frá Noregi. Á vefsíðu Alþjóðlegs árs skóga má lesa ávarp forsetans í heild sinni.


Texti og mynd: Vefur Alþjóðlegs árs skóga