Merki Kuðungsins
Merki Kuðungsins

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2021. Kuðungurinn verður afhentur i tengslum við dag umhverfisins.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta bæði tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Við mat á viðurkenningarhöfum er horft til eftirfarandi þátta: Umhverfisstjórnunar, innleiðingar nýjunga í umhverfisvernd, losun gróðurhúsalofttegunda, minni efnanotkunar, lágmörkunar úrgangs, mengunarvarna, umhverfisvænni þróun á vöru eða þjónustu, framlags til umhverfismála, samstarfs í umhverfismálum og vinnuumhverfis.

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 25. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Á síðasta ári hlaut Íslandsbanki viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2020.