Viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðl­indaráðuneytisins óskar eftir til­nefn­ing­um um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári sé þess verðug að hljóta umhverfis­viður­kenn­ing­una Kuðunginn fyrir árið 2016.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auð­linda­ráðuneytinu eigi síðar en miðviku­daginn 17. mars merktar „Kuðungurinn“ á póstfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlinda­ráðu­neyt­ið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfis­ráðu­neytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

2015 - ÁTVR
2014 - Landspítalinn
2013 - Kaffitár 
2012 - Íslenskir fjallaleiðsögumenn
2011 - Náttúran.is
2010 - Farfuglaheimilin í Reykjavík
2009 - Oddi  
2008 - Íslenska gámafélagið.
2007 - Sólarræsting.
2006 - Bechtel.
2005 - Línuhönnun.
2004 - Orkuveita Reykjavíkur.
2003 - Hópbílar.
2002 - Árvakur.
2000 - Íslenska álfélagið.
1999 - Borgarplast.
1998 - Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi.
1997 - Olíufélagið.
1996 - Fiskverkun KEA í Hrísey.
1995 - Prentsmiðja Morgunblaðsins.
1994 - Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði.