(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)
(mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir)

Starfið er laust frá og með 1. janúar 2015

Skógrækt ríkisins auglýsir laust til umsóknar starf aðstoðarskógarvarðar á Norðurlandi með aðsetur á Vöglum í Fnjóskadal.  Starfið heyrir undir þjóðskógasvið Skógræktar ríkisins og felst einkum í skipulagningu og framkvæmd verkefna er lúta að meðferð þjóðskóganna á Norðurlandi.  Um 100% starf er að ræða og er miðað við að upphaf ráðningar sé 1. janúar 2015.

Skógrækt ríkisins er þekkingar-, þróunar- og þjónustuaðili sem vinnur með og fyrir stjórnvöld, almenning og aðra hagsmunaaðila að rannsóknum, ráðgjöf og þekkingarmiðlun á sviði skógræktar.

Kröfur um menntun, reynslu og hæfni:   

  • Háskólamenntun í skógfræði, skógtækni eða skyldum greinum er æskileg.
  • Reynsla af vinnu við gróðursetningu, grisjun og aðra skógarumhirðu er nauðsynleg.
  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum er æskileg. 
  • Reynsla af skógmælingum og gerð skógræktaráætlana er nauðsynleg. 
  • Reynsla af notkun Arc Info er æskileg. 
  • Hæfni til að stjórna verkefnum og vinna hvort heldur sem er sjálfstætt eða í hópavinnu er skilyrði. 
  • Samstarfshæfni og jákvæð almenn framkoma eru skilyrði.

Laun: skv. kjarasamningum ríkisins.

Nánari upplýsingar veitir Þröstur Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins í síma 470 2007 eða tölvupósti: throstur@skogur.is . 

Umsóknarfrestur er til 8. desember 2014.  Umsóknir ásamt ferliskrá berist til Skógræktar ríkisins, Miðvangi 2-4, 700 Egilsstöðum. 

Öllum umsækjendum verður svarað.