06052013-(1)Við eyrar Þverár í Fljótshlíð er að finna einna best varðveittu fornskógaleifar á landinu. Svæðið kallast Drumbabót en það einkennist af miklum fjölda trjádrumba sem standa 20-60 cm upp úr sandi. Rannsóknir hafa sýnt að hér er um birki að ræða. Mælingar á árhringjabreiddum trjánna sýndu einnig að trén drápust samtímis, vegna þess að árhringurinn næst berki myndaðist sama árið í öllum trjánum. Má leiða líkur að því að fornskógur þessi hafi eyðst í einu af þeim jökulhlaupum sem farið hafa til vesturs niður Markarfljótsaura, en upptök stærri jökulhlaupa eru í flestum tilvikum undir Mýrdalsjökli vegna eldsumbrota í Kötlu.

Árið 2004 voru gerðar aldurgreiningar á forntrjánum með geislakolsgreiningu og niðurstöður þeirra sýndu  að skóginum var grandað fyrir um 1200 árum (755-830 e.Kr.).

06052013-(3)Nú í vetur voru  gerðar mjög nákvæmar geislakolsmælingar (C-14) á einu fornbirkitrénu úr Drumbabót og voru allir árhringirnir mældir. Mælingarnar voru gerðar við ETH-háskólann í Zürich í Sviss. Niðurstöður greininganna sýndu að árhringurinn næst berki í fornbirkinu myndaðist sumarið 822 e.Kr.

Þessi nákvæma aldursgreining er byggð á því að árin 774 og 775 e. Kr. urðu mjög miklar breytingar á  geislakoli í andrúmslofti og er þessi atburður „skráður“ í árhringjum forntrjánna í Drumbabót. Hlaupið sem grandaði skóginum á Markarfljótsaurum átti sér því stað veturinn 822-23 e. Kr., mjög líklega vegna eldgoss í Kötlu. Hér er því komin „dagsetning“ á síðasta hamfaragosi  í Kötlu sem fór í vestur og  yfir Markarfljótsaura. Hér er um að ræða nákvæmustu aldursgreiningu með geislakolsaðferð á einstökum atburði  sem gerð hefur verið á Íslandi.

Texti: Ólafur Eggertsson
Myndir: Ólafur Eggertsson og Hrafn Óskarsson