Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Norræni vinnuhópurinn um líffræðilega fjölbreytni, NBM, vinnur að því að stemma stigu við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni á Norðurlöndum og tryggja með því að vistkerfin verði áfram öflug og veiti þá vistkerfaþjónustu sem nauðsynleg er fyrir velferð og hagvöxt. Frestur til að sækja um styrki er til níunda júní.

NBM leggur höfuðáherslu á líffræðilega fjölbreytni, vistkerfi, náttúruvernd og sömuleiðis útivist, landslag, menningarumhverfi og vistkerfaþjónustu. Einnig að tryggja að líffræðilegri fjölbreytni og vistkerfaþjónustu sé veitt athygli í vinnunni sem snýr bæði að loftslagsaðlögun og loftslagsbreytingum. NBM starfar á grundvelli umhverfis- og loftslagsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar, einkum 5. kafla um líffræðilega fjölbreytni.

Áherslur við úthlutun styrkja árið 2024 eru, auk verkefna sem fjalla um líffræðilega fjölbreytni, sjálfbær neysla og sjálfbærir staðir. Þá er óskað eftir verkefnum sem stuðla að innleiðingu á nýjum markmiðum um lífræðilegan fjölbreytileika (aðgerðaráætlun Sameinuðu þjóðanna CBD), verkefni sem takast á við ólögleg athæfi gagnvart náttúru og lífríki, sjálfbær notkun á gömlum byggingum og nytjaskógrækt með tilliti til nátttúru og menningarlandslags.

Umsóknarfrestur er til 9. júní 2023

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð