Á döfinni á Hallormsstað í október

Mikilvægt er að allir sem nota keðjusög læri réttu handtökin og tileinki sér rétt vinnubrögð til þess að afköst verði góð en ekki síður til að fyllsta öryggis sé gætt og komist verði hjá slysum. Landbúnaðarháskóli Íslands heldur reglulega námskeið um trjáfellingar og grisjun með keðjusög. Slíkt námskeið verður til dæmis haldið á Hallormsstað í október.

Námskeiðið er öllum opið. Það hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær en einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Fyrsti dagurinn er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu, leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellingar og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða.

Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka þær í sundur. Komið verður inn á hvernig leita skuli að einföldum bilunum í söginni og nemendum kennt hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýning keðju. Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Kennari: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá LbhÍ.

Tími: Þri. 11. okt. kl. 9:00-17:30, mið. 12. okt. kl. 9:00-17:30 og fim. 13. okt.. 9:00-16:00 (3x) á Hallormsstað (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Skráningarfrestur er til 3. október.

Verð: 43.000 kr. (gögn innifalin í verði).