Ljósmynd: Pétur Halldórsson
Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Aaron Shearer, nýráðinn skógræktarráðgjafi Skógræktarinnar sem starfar á Vesturlandi, leiðbeinir um mat á ástandi trjáa og mögulegum hættumerkjum á námskeiði sem haldið verður í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi fjórða maí. Skráningu lýkur 30. apríl.

Með hlýnandi veðri og hækkandi trjágróðri í þéttbýli er orðið mikilvægt að geta lagt mat á ástand trjáa og möguleg hættumerki.

Námskeiðið hefst á bóklegri yfirferð þar sem farið verður ítarlega yfir helstu kvilla í trjám, varnarviðbrögð þeirra og heilbrigði. Einnig verður fjallað um hvernig meta má möglega hættu sem getur stafað af trjám með það fyrir augum að koma í veg fyrir skaða á fólki eða eignum. Varnarviðbrögð trjáa verða skoðuð og hvernig þau bregðast við áreiti, skaða og klippingum.

Seinni hluti námskeiðsins er verklegur og þá verða tré skoðuð með tilliti til áhættumats. Nemendur læra að nota mismunandi matsaðferðir og fjallað verður um muninn á ítarlegu áhættumati og sjónrænu mati á ástandi trjáa. Auk þess verður farið yfir hvernig skipuleggja má inngrip í takti við niðurstöður matsins.

Þetta dagsnámskeið hentar öllum þeim sem vinna við trjáklippingar, ráðgjöf, framkvæmdir í og við græn svæði og önnur störf tengd umhirðu trjágróðurs. Námskeiðið fer fram á ensku, túlkað eftir þörfum.

  • Kennari: Aaron Shearer, skógræktarráðgjafi hjá Skógræktinni (MArborA PGDip)
  • Tími: Fimmtudaginn 4. maí 9-15 (7 kennslustundir) hjá Garðyrkjuskólanum á Reykjum, Ölfusi
  • Verð: 34.000 kr. (kaffi, hádegismatur og námsefni innifalið í verði)
  • Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is

Skráning til 30. apríl.