Mikilvægt er að huga vel að öryggismálum við trjáfellingu, ekki síst í þéttbýli. Þar skiptir líka mi…
Mikilvægt er að huga vel að öryggismálum við trjáfellingu, ekki síst í þéttbýli. Þar skiptir líka miklu máli að velja hvaða tré skuli felld og hver skuli fá að standa. Ljósmynd: Pétur Halldórsson

Endurmenntun græna geirans hjá Garðyrkjuskólanum - FSU heldur námskeið í fellingu trjáa og grisjun með keðjusög á Reykjum í Ölfusi dagana 24. til 26. janúar.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.

  1. Fyrsti dagurinn er bóklegur og þar verður meðal annars farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu. Farið verður yfir leyfi og öryggissjónarmið við fellingu trjáa í þéttbýli. Einnig verður fjallað um val á trjám til fellingar og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða.
  2. Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar með því að taka hana í sundur. Farið verður yfir hvernig framkvæma skuli einfalda bilanaleit í söginni, ásamt hefðbundnu viðhaldi, þrifum sagar og brýningu keðju.
  3. Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki slíkan búnað með sér á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

  • Kennsla: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSU
  • Tími: Þriðjudagur 24. janúar kl. 9-17.30, miðvikudagur 25. janúar kl. 9-17.30 og fimmtudagur 26. janúar kl. 9-16 hjá LbhÍ á Reykjum í Ölfusi.
  • Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til einnar einingar af námi í garðyrkjufræðum
  • Skráning: gardyrkjuskolinn@fsu.is
  • Verð: 74.000 kr. (kennsla, hádegismatur og gögn innifalin í verði)

Skráningarfrestur er til 18. janúar

Sett á skogur.is: Pétur Halldórsson