Mynd: Endurmenntun LbhÍ
Mynd: Endurmenntun LbhÍ

Endurmenntun LbhÍ stendur fyrir námskeiði á Héraði 28. febrúar til 2. mars í grisjun og trjáfellingu með keðjusög. Námskeiðið er öllum opið og hentar þeim sem ekkert kunna á keðjusagir og vilja læra á þær. Einnig þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða vilja öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Hámarksfjöldi þátttakenda er 10.

Bæði bóklegt og verklegt

Fyrsti dagur námskeiðsins er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu en einnig leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli. Þá verður fjallað um val á trjám til fellinga og komið inn á grisjun skóglendis, trjáþyrpinga og garða.

Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusaganna með því að taka þær í sundur. Komið verður inn á hvernig framkvæma eigi einfalda bilanaleit í söginni, ásamt því að nemendur læra hefðbundið viðhald, þrif sagar og brýningu keðju.

Loks verður einn og hálfur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.

Búnaður og námsmat

Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm taki það með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnað lánaðan á námskeiðinu.

Þetta er þriggja daga námskeið á framhaldsskólastigi sem meta má til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.

Hámarksfjöldi þátttakenda er 10 manns.

  • Kennsla: Björgvin Örn Eggertsson, skógfræðingur hjá LbhÍ
  • Tími: Mán. 28. febrúar-mið. 2. mars (3 dagar/28 kennslustundir)
  • Staður: Hjá Skógræktinni á Egilsstöðum og á Hallormsstað
  • Verð: 69.000 kr. (Verkleg og bókleg kennsla í þrjá daga, fatnaður, tækja- og öryggisbúnaður innifalinn í verði)
  • Hagnýtar upplýsingar: Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til að sækja námskeið eða nám.