Loftmynd af gosinu í Holuhrauni snemma í september 2014. Mynd: Wikimedia Commons - Peter Hartree.
Loftmynd af gosinu í Holuhrauni snemma í september 2014. Mynd: Wikimedia Commons - Peter Hartree.

Áhrif á gróður og lífríki

Málþing um áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni á gróður og lífríki

Málþingið verður haldið kl. 13-17, mánudaginn 23. mars  í fundarsalnum Kötlu á 2. hæð á Hótel Sögu í Reykjavík.

Tilgangur málþingsins er að miðla upplýsingum um bein og óbein áhrif mengunar frá eldgosinu í Holuhrauni og hvernig eftirliti með menguninni er og verður háttað.

13.00 – 13.30 Ávarp sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra  
13.30 – 13.50 Almennt um efnamengun frá eldgosinu Veðurstofan
13.50 – 14.10 Loftmengun Umhverfisstofnun
14.10 – 14.30 Mengun yfirborðsvatns Jarðvísindastofnun HÍ
14.30 – 14.50 Áhrif á lífríki í ám og vötnum Veiðimálastofnun
14.50 – 15.10 Áhrif á villt dýr og vistkerfi Náttúrufræðistofnun
15.10 – 15.30 Kaffi  
15.30 – 15.50 Áhrif á gróður og fóður fyrir búfé Landbúnaðarháskólinn
15.50 – 16.10 Áhrif á búfé Keldur
16.10 – 16.30 Áhrif á skógrækt Skógræktin
16.30 – 17.00 Almennar umræður  

Málþingið er haldið á vegum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Bændasamtaka Íslands, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

Hljóðupptökur og glærur vegna ofangreindra erinda og umræðna verða aðgengilegar eftir málþingið á vef Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, www.anr.is og vef Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra www.avd.is

Fundarstjóri: Halldór Runólfsson