Fimmtudaginn 17. janúar, á Hjálmakletti í Borgarbyggð, fer fram málþing um gróðurelda.

Athugið að aðgangur er ókeypis og málþingið verður í beinni útsendingu á netinu.

Markmið málþingsins: Á málþinginu verður lögð áhersla á að ræða og miðla upplýsingum leiðir til að auka viðbúnaðargetu slökkviliða með samstarfi sveitarfélaga og stofnana og skilgreina ábyrgð sveitarfélaga og annarra stjórnvalda. Fjallað verður um reynsluna af baráttu við gróðurelda, lagt mat á möguleika slökkviliða til að ráða niðurlögum þeirra og rætt um hvaða úrbóta er þörf hvað varðar mönnun slökkviliða, búnað þeirra og fjárhagslega áhættu sveitarfélaga af völdum gróðurelda. Einnig verður fjallað um aðgerðir til forvarna og áhrif gróðurelda á náttúruna.

Markhópur: Sveitarstjórnir, slökkviliðsstjórar, opinberar stofnanir, skógarbændur, tryggingarfélög, landeigendur og náttúru- og umhverfisverndarsamtök.


Mynd: Esther Ösp Gunnarsdóttir