Stígurinn liggur gegnum þroskaðan skóg með ýmsum trjátegundum.
Stígurinn liggur gegnum þroskaðan skóg með ýmsum trjátegundum.

Mikilvæg aðstaða til endurhæfingar, þjálfunar og útivistar

Framkvæmdum er nú að mestu lokið við lagningu 330 metra malbikaðs skógarstígs í Kristnesskógi í Eyjafirði. Stígurinn verður formlega opnaður þriðjudaginn 23. ágúst kl. 15. Fulltrúar Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni, Sjúkrahússins á Akureyri og Skógræktarinnar flytja ávörp við opnunina.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið veitti styrki til framkvæmdanna á þessu ári og því síðasta. Stígurinn verður kærkominn fyrir alla gesti skógarins en þó ekki síst fólk sem nýtur aðhlynningar og endurhæfingar á Kristnesspítala þar sem er bæði endur­hæfingar­deild og öldrunarlækningadeild.

Upphaf málsins var að Sjálfsbjörg á Akureyri sótti í samvinnu við Skógrækt ríkisins um styrk hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til lagningar stígs fyrir hreyfihamlaða í Kristnesskógi. Í byrjun síðasta árs veitti ráðuneytið 1,4 milljónir króna úr verkefnasjóði sínum á sviði umhverfis- og auðlindamála. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða lagði að auki til hálfa milljón króna úr sérstakri fjárveitingu fyrir árið 2015. Þessi framlög nægðu til að hefja mætti verkið en í vor bættist við annar styrkur frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 2,4 milljónir, sem nægir til að ljúka við stíginn. Styrkir til verkefnisins nema samtals 4,3 milljónum króna.


Um hönnun stígsins sá Ingvar Ívarsson, landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf. á Akureyri en Túnþökusala Kristins tók að sér framkvæmdina. Verkið hófst á liðnu hausti en í sumar var stígurinn malbikaður og síðustu daga hefur verið unnið að því að þökuleggja, ganga frá áningarstöðum og fleira. Stígurinn er um 330 metrar á lengd og breiddin um 1,6 metrar við yfirborð. Hæðin er mjög mismunandi. Mest gæti hún verðið um 1 metri enda þarf stígur sem þessi að vera sem sléttastur og halli hans aldrei meiri en 60 prómill svo að hann fullnægi stöðlum um hjólastólafæra stíga.

Að sögn Rúnars Ísleifssonar, skógarvarðar á Norðurlandi, er sá hluti Kristnesskógar sem stígurinn liggur um að mestu leyti gróðursettur á árunum um og upp úr 1950. Helstu trjátegundir á svæðinu eru birki, sitkagreni og síberíulerki en tegundirnar eru talsvert fleiri sem ber fyrir augu og fjölbreyttur gróður í skógarbotni.



Kristnesspítali var upphaflega reistur sem berklahæli og enn í dag er talað um Hælið í sveitinni. Nú eru þar reknar tvær deildir Sjúkrahússins á Akureyri, öldrunardeild og endurhæfingardeild. Aðstaða er góð í Kristnesi og þar er meðal annars þjálfunarsundlaug, en skógurinn veitir líka tækifæri til þjálfunar og endur­hæf­ing­ar sem með tilkomu þessarar nýju útiaðstöðu nýtist enn betur en fyrr.

Ingvar Þóroddsson, yfirlæknir endur­hæf­ing­ar­deild­ar­inn­ar, segir að stígurinn muni breyta miklu fyrir báðar deildir spítalans. Þarna komist fólk á hjólastólum eða með göngugrindur auðveldlega út í heilnæmt umhverfi skógarins. Fjölmargar rannsóknir hafi sýnt fram á jákvæð áhrif gróðurs, ekki síst skóga, á líðan fólks. Ingvar telur að með tilkomu þessa stígs verði komin aðstaða við Kristnesspítala sem sé einstök við sjúkrahús á Íslandi og til eftirbreytni. Hann tekur þó skýrt fram að þessi stígur sé ekki fyrir spítalann einan. Hann verði opinn öllum og allir velkomnir að nota hann enda er Kristnes­skóg­ur þjóðskógur.


Allir eru velkomnir að opnun stígsins kl. 15 þriðjudaginn 23. ágúst. Við opnunina talar Herdís Ingvadóttir,  for­mað­ur Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri, Ingvar Þórodsson ræðir um gildi útiveru og hreyfingar í endur­hæf­ingar­starfi og Rúnar Ísleifsson skógarvörður segir frá skóginum. Síðan verður drukkið ketilkaffi í boði Skógræktarinnar og snæddar góðgerðir í boði spítalans.

Í garðinum sunnan við Kristnesspítala eru eldri malbikaðir stígar á jafnsléttu.
Ásamt nýja stígnum í skóginum skapa þeir fjölbreytta aðstöðu til útivistar, hreyfingar
og þjálfunar og bæta þannig aðstöðu til endurhæfingar á spítalanum.



Texti og myndir: Pétur Halldórsson
Kort: Ingvar Ívarsson/Landslag