Nýsprottið lauf á hengibjörk.
Nýsprottið lauf á hengibjörk.

Umsóknarfrestur til 20. september

Landssamtök skógareigenda (LSE) auglýsa starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar. Um er að ræða 80% starf og er miðað við að ráðið verði í það frá 1. nóvember 2017, eða eftir samkomulagi.

Landssamtök skógareigenda eru heildarsamtök skógareigenda um land allt, þau gæta hagsmuna skógarbænda gagnvart stjórnvöldum og hvetja til nýtingar lands á grundvelli sjálfbærrar þróunar.

Helstu verkefni:

  • Sinna daglegum rekstri samtakanna.
  • Gæta hagsmuna skógareigenda gagnvart stjórnvöldum.
  • Vinna að fjáröflun vegna verkefna. 
  • Undirbúa stjórnar og aðalfundi. 
  • Yfirumsjón með heimasíðu, kynna starfsemi LSE, sinna fræðslu og útgáfu. 
  • Vinna með og aðstoða aðildarfélögin við verkefni eftir því sem óskað er. 
  • Vinna með og aðstoða nefndir og starfshópa, sem skipaðir eru af samtökunum. 
  • Samskipti við erlend systrasamtök. 
  • Vinna með stofnunum sem standa að nytjaskógrækt. 
  • Önnur verkefni sem stjórn felur framkvæmdastjóra. 

Hæfniskröfur og eiginleikar: 

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi, einnig væri reynsla af rekstri æskileg. 
  • Víðtæk kunnátta á tölvu- og upplýsingatækni. 
  • Hafa gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli. 
  • Hafa reynslu af félagsstörfum og hæfni í mannlegum samskiptum.  

Landssamtök skógareigenda gera þá kröfu til starfsfólks að það: 

  • vinni samkvæmt stefnu og markmiðum Landssamtaka skógareigenda, sem er að efla skógræktarstarf í landinu, auka umfang skóga, bæta árangur og vinna að uppbyggingu atvinnugreinarinnar skógrækt. 
  • sé í góðum tengslum við aðildarfélögin. 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Félags náttúrufræðinga.

Nánari upplýsingar veitir: Jóhann Gísli Jóhannsson formaður Landssamtaka skógareigenda, sími 893-9375, netfang joibreidi@gmail.com Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2017. Vinsamlegast sendið umsóknir, ásamt ferilskrá og staðfestingu á menntun á Austurveg 1-3, 800 Selfoss, merkt: Landssamtök skógareigenda Austurvegur 1-3. 800 Selfoss Einnig má senda umsóknir í tölvupósti á netfangið joibreidi@gmail.com Öllum umsækjendum verður svarað.

Af vefnum: www.skogarbondi.is