Anna Borg, formaður Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar flytur stutt ávarp og að því loknu veitir Steina…
Anna Borg, formaður Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar flytur stutt ávarp og að því loknu veitir Steinar Björgvinsson skógfræðingur leiðsögn um skóginn.

Takið með ykkur ljósfæri!

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar bjóða til skógargöngu í kvöld, þriðjudaginn 24. október, kl. 19.30.

Safnast verður saman við Gróðrarstöðina Þöll við Kaldárselsveg og þaðan verður gengið um skógarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Við upphaf göngunnar flytur formaður Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar, Anna Borg, stutt ávarp og að því loknu mun Steinar Björgvinsson skógfræðingur veita leiðsögn um skóginn.

Gert er ráð fyrir að skógargangan taki um eina klukkustund og að henni lokinni verður boðið upp á heitt súkkulaði og meðlæti í húsakynnum Þallar. Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar og Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hvetja sem flesta til að taka þátt í kvöldgöngu um skóginn. Göngufólk er beðið að taka með sér ljósfæri þar sem skuggsýnt er orðið.

Af vef Skógræktarfélags Hafnarfjarðar